Arsenal/Tony Adams

04.09.2008 21:15:55 / natan

Hættur

NÝ SÍÐA

www.znati.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 14:10:43 / natan

Tony Adams

Ef þetta er ekki besti varnarmaður í sögu Enska boltans og í liði Arsenal og Enska landsliðsins þá veit ég ekki hvað ég heiti endilega skoðið myndböndin hér að neðan

http://youtube.com/watch?v=htwUEPofRjw

http://youtube.com/watch?v=YUAhxFlWQdE

http://youtube.com/watch?v=-w2V2tLMHac

http://youtube.com/watch?v=fNByu79xRlY


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 07:31:47 / natan

Já sæll

Já gleðilegt nýtt á og takk fyrir það gamla ég hef nebbilega ekkert bloggað á þessu ári djöful getur maður verið lélegur bloggari.En já þetta er búin að vera freka skrýtin helgi laugardagurinn í gær var þannig að ég vaknaði klukkan 07:00 til að vakna á réttum tima í vinnuna en vinnan byrjar alltaf klukkan 07:30 og var að vinna til þrjú. Svo fór ég heim eftir vinnu sast beint í sófan horfði á Arsenal - Newcastle og svo eftir hann um klukkan 17:00 horfði ég á Danmörk - Þýskaland í undanúrslitum EM í handbolta og að sjálfsögðu var ég og mamma lýmd við skjáinn til að styðja Danina áfram enda unnu þeir meðö einu marki undir blálokin glæsilegt hjá Dönum að vera komnir í úrslit þar sem þeir mæta Króatíu í dag sem að ég var búin að spá sigri í keppninni en Áfram Danmörk.Svo þessi sunnudagur sem er í dag ég sofnaði í gær klukkan 19:00 og vaknaði núna áðan fyrir um klukku tíma síðan 06:00 skil ekki hvernig ég gat sofið svona mikið því ég var nú að hugsa um að kíkja út á lífið í gærkveldi.Ég var lika búin að fá 12 missed calls og eitt sms á símann minn þegar ég vaknaði í morgun þau voru frá fólkinu á barnum því ég var búin að lofa því að ég ætlaði á barin.En læt þetta held ég næga í bili veriði bless.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 23:00:06 / natan

Hæjj Komin heim frá Kúbu

Já komið sæl dömur og herrar þá er maður komin heim úr þessari Kúbuferð eða þetta var reyndar bæði vikuferð til Kúbu og helgarferð til Kanada.Já þannig var að það var millilent í Kanada eins og í fyrri ferðinni og þá var okkur sagt að það yrði sirka klukkustundar bið en svo eftir tvo tíma kom flugstjórinn og tilkynnti okkur að það hafi fundist dæld á Vélinni og þyrftum kannski að bíða í tvo tíma í viðbót og svo eftir það þegar við vorum búin að bíða í Fimm tíma í flugstöðinni þá kom flugstjórinn aftur og tilkynnti okkur það að þetta væri meiri bilun en búist var við að það tæki kannski 10 - 11 tíma þannig að þá var okkur reddað á hótel.En það var ömurlegt því að þá fórum við út og biðum fyrir utan flughstöðina í svona 10 stiga frosti og skíta kulda neinei þá koma bara einn sex manna rútubíll alveg hræðilegt því það voru þarna um hundrað Íslendingar að bíða í röðinni.Þetta stopp í Kanada tók 28 klukkustundir og ég var orðin heldur þreyttur á því að bíða og fá að komast heim.Já þetta var þvílíkt ævintíri þessi ferð og ætla ég svona að sega ykkur smá frá Kúbu.Þetta er bara eitthvað til að fara einu sinni það er forljótt þarna allt saman hús á hæð við mig klóak útum allar götur svo má maður varla fara út þá er byrjað að betla en annars eru Kúbverjar bara fínt og vingjarnlegt fólk ég mæli alveg með að fara þangað og skoða það er margt fallegt hægt að sjá á Kúbu þótt það séu ljót hús en það fallegasta á Kúbu eru bílarnir allir flestir frá 1950-70 Lada sport og svoleiðis bílar ég segi þetta gotta að sinni ég heyri í ykkur síðar endilega kommentið og það eru myndir á leiðinni frá Kúbu

» 9 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 20:12:13 / natan

Hihihihihiihih þetta er fyndin mynd hér að neðan af sjálfum manninum sem heitir að réttu nafni tankurinn reyndar Óttar Már Kárason hann varð fyrir því óláni að drepast í partýi

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 20:29:18 / natan

Jebbí

The image “http://www.artistdirect.com/Images/artd/amg/music/bio/477627_pavarotti_200x200.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Já Meistarinn og stórtenórinn Luciano Pavarotti lést í morgun aðeins 71 árs að aldri blessuð sé minning hans hér koma nokkrar kveðju myndir af stjörnunni.

 

 The image “http://media.philly.com/images/300*427/667c3bcc-ff72-4c55-a7c2-e86b363eb124.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

 

http://www.rica.idv.tw/images/263810~Luciano-Pavarotti-Posters.jpg

The image “http://www.sergeicartoons.com/Caricaturas/imagens/Luciano-Pavarotti.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

http://cache.eb.com/eb/image?id=67641&rendTypeId=4


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 20:12:54 / natan

jæja það er komin tími á blogg um hvað á ég að blogga

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 18:41:41 / natan

Aðdáendaklúbbur

 Ég ætla að stofna aðdáendaklúbb Sigga storms útvega boli og svona með mynd af kappanum.Siggi er nátturlega heiðursmaður fyrir góða veðurfréttamennsku að bestu gerð ég horfi á hann í sjónvarpinu á hverju kvöldi en þeim sem lýst vel á þessa hugmynd mína og vilja standa með mér og vilja boli commentið hér að neðan.Læt hér fylgja nokkrar myndir af kappanum

 

 

The image “http://www.vedurehf.is/SR-vedurkort.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. Þvílik fréttamennska

The image “http://www.vedurehf.is/SR-starfsmadur.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Hann Siggi er alltaf léttur í lund og kampakátur á svipinn

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 22:57:45 / natan

Loksins blogg

Jæja hvað segið það er nú heldur betur langt síðan að ég hef bloggað eða látið
vita hér almmenilega af mér.Það hefur nú eitthvað gerst í mínu lífi frá
síðasta bloggi t.d. að 3.deildin hjá okkur Neistamönnum er hafin og við erum
búnir að spila tvo leiki og fresta tveimur.Við frestuðum fyrsta leiknum sem átti
að vera hér á Djúpavogsvelli vegna þess að það var engin markvörður vorum reyndar
búnir að fá Daniel Pólska markvörðinn okkar en hann var ekki komin með leyfi til
að spila hér á landi.svo áttum við að spila bikarleik hér heima á móti öðrudeildarliði
Sindra frá Höfn en þá gáfumk við leikinn vegna manneklu það voru svo margir meiddir
að við hefðum bara verið sirka 9 inná þannig að ákváðum bara að gefa þeim leikinn.
en svo fyrsti deildarleikurinn fór fram á Akureyri á afmælisdaginn minn 26. Maí
þar spiluðum á móti Hömrunum varalið KA þeir eru nú ekkert með sérstakt lið
en samt töpuðum við leiknum 4-0 veit ekki alveg hvað var í gangi reyndar bara
búnir að taka einn æfingaleik fyrir þann leik það segir eitthvað um úrslit leiksins
ekki alveg komnir í gang.En í gærkvöld þá vorum við svo sannarlega komnir í gang og
tilbúnir í slaginn við spiluðum hér heima á móti Huginn frá Syðisfirði þeir voru í
annarideildinni í fyrra og það eru margir búnir að spá þeim þangað upp aftur
og fyrir leikinn voru margir sem ég þekki að segja að við myndum grúttapa þessum
leik og spáðu svon um svona þrjú til sjö núll fyrir Huginn en það koma annað á daginn
við Neistamenn spiluðum frábærlega og vil ég segja við fólkið sem spáði okkur tapi
og var búið að drulla yfir okkur fyrir leikinn að taka þau orð til baka og hugsa sinn
gang því við unnum leikinn verðskuldað 1-0 allt gekk upp þeir voru reyndar betri og
voru óheppnir að vinna ekki leikinn en ekkert í okkar leik klikkaði varnarleikurinn
var frábær miðjan frábær og sóknin var fín en það var Njáll sem skoraði eina mark
leiksins rétt fyrir hálfleik en nóg af fótbolta í bili.Ég eignaðist littla sæta
frænku á dögunum Gunnar bróðir eignaðist þá sitt annað barn og sína aðra stelpu
og ég var bara mjög ánæður með það.Svo síðustu helgi var haldin hin árlega Hamondhátíð
hér á Djúpavogi og það heppnaðist bara mjög vel landsliði tónlistarinnar á Íslandi
kom og spilað og með þeim söng engin önnur en Andrea Gylfadóttir úr hljómsveitinni
Tod Mobile og það var bara mjög gaman að hlusta á það helvíti góð söngkona.
En jæja ég held bara að þetta sé orðið ágætt blogg hjá mér ætla að blogga aftur
í þessari viku eða á mánudag og segja hvað hafi gerst um helgin verið sæl að sinni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 15:56:50 / natan

Hehe

Mynd vikunar

Já hann Kristján fór á kosningavöku á Seyðisfirði síðustu helgi og hitti hann þar Guðmund Karl og það fór nú bara vel á með þeim eins og sést á myndinni 
 
þessi mynd á svo sannarlega þennan heiður skilið 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 22:06:26 / natan

Kjósum Frjálslyndaflokkinn til sigurs

1.Burt með óréttlátt kvótakerfi
2.Gegn fordómum og misrétti á erlendu verkafólki
3.Afnemum verðtryggingu á lánsfé
4.Hækkum skattleysis mörkin strax í 112.000 krónur
5.Festum Reykjarvíkurflugvöll í sessi. (Reyndar ósammál því)

Já sæl komin tím á blogg.Það er stutt í kosningar og ég er búin að ákveða mig
ég ætla að kjósa XF Frjálslyndaflokkinn hef reyndar verið vinstri maður
en það sem mér finnst Steingrímur J minn maður vera að bulla mikið hef ég ákveðið
frekar að kjósa XF.En formaður flokksins er Guðjón A.Kristjánsson sem er minn maður og hef líkað vel
við lengi hann vill breyta jvótkerfinu í frjálst kvótakerfi þannig að hver sem er getur farið á sjó
þó að maður eigi ekki kvóta sem kemur sér vel fyrir mig þar sem ég hef verið að velta fyrir mér
hvort ég ætti að kaupa mér tryllubát langar það svo mikið.En annars hljómar þá kvótakerfið svona.



Sjávarútvegsmál:


Frjálslyndi flokkurinn hafnar með öllu núverandi útfærslu kvótakerfisins  vegna þess að það veldur:

 

    

      Hruni byggða og fækkun íbúa
    

      Minni atvinnu með sölu og tilfærslu kvótans
    

      Árangursleysi við uppbyggingu á stofnum botnfiska
    

      Sóun á verðmætum með rangri nýtingu fiskimiðanna

    

      Þess vegna viljum við stefna út úr kvótakerfinu með eftirfarandi aðgerðum á næsta kjörtímabili:

1. Hafrannsóknarstofnun verði færð undan stjórn hagsmunaaðila

2. Fiskiskiptaflotanum verði skipt upp í 4 útgerðarflokka og undirbúið að færa færa flotann í sóknarstýringu í áföngum þar sem byrjað verði á útgerðarflokk minnstu bátanna.

3. Fisktegundum í kvóta verði fækkað.

4. Fiskveiðar verði strax opnaðar fyrir nýliða með því að leyfa handfæraveiðar á eigin bátum allt að 30 tonn að stærð með tveimur mönnum mest í áhöfn og 4 rúllum. Að 5 árum liðnum ber að endurskoða regluna og taka upp sóknarstýringu til takmörkunar ef ástæða þykir til.

5. Sett verði löggjöf um sölu og leigu á aflaheimildum og tryggð þjóðareign á fiskimiðunum og nýtingu þeirra. Meginreglan verður sú að aflaheimildir beri að nýta til veiða. Leiga og sala aflaheimilda fari aðeins um einn farveg, sérstakan opinberan viðskiptamarkað. Við sölu á aflahlutdeild verður hún skilgreind sem afnotaréttur í takmarkaðan tíma gegn gjaldi til ríkisins.

6. Tekjum ríkissjóðs af viðskiptum með aflaheimildir um opinbera viðskiptamarkaðinn verði skipt að jöfnu milli ríkis og sveitarfélaga.

7. Veiðar og vinnsla verði aðskilin fjárhagslega og allur óunninn fiskur verði seldur á markaði.

8. Tekinn verði upp jafnstöðuafli 220 þús. tonn í þorski. Til aflahlutdeildarkerfisins verði ráðstafað sem svarar meðaltali síðustu 15 ára ( áætlað um 170 þús. tonn.)

9. Því sem er umfram hlut aflahlutdeildarkerfisins á hverju ári verði ráðstafað til leigu um viðskiptamarkaðinn og þar af verði tuttugu þúsund tonn af þorski úthlutað til veiða frá landssvæðum þar sem verulegur samdráttur hefur orðið í aflaheimildum og hagvöxtur síðustu ára hefur verið hvað minnstur og jafnvel neikvæður. Þær heimildir verði leigðar með þeim skilyrðum að gert verði út frá viðkomandi landssvæði og aflinn seldur á markaði þar og unninn. Leigutekjum ríkisins af þessum sérúthlutuðum veiðiheimildum verði ráðstafað til atvinnuuppbyggingar á sömu landssvæðum.

Kjósum XF til sigurs.

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 23:07:17 / natan

Til hamingju með afmælið

Skúli á afmæli í dag og óska ég honum til hamingju með daginn en þið

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 22:13:20 / natan

Nýtt blogg

jæja loksins nýtt blogg hvað segiði er eitthvað í fréttum

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:12:18 / natan

Finnbogi Aragutsen

Já já ég veit ég veit ég er ekki góður að blogga er ekki duglegur við það fer líka eftir því hvort maður hefur tima eða ekki
en djö er langt síðan ég bloggaði og hér keur eitt um liðna helgi.Föstudadskvöld fór í fótbolta eftir hana fór ég heim í sturtu þá hringdi
Kristján í mig og spurði mig hvað ég ætlaði að gera eða hvort það væri eitthvað um að vera ég sagðist bara ætla að vera rólegur um helgina
og það væri ekkert um að vera fyrr en á morgun.Laugardagurinn vaknaði um hádegi horfði á Tottenham - Arsenal þvílíkur leikur endaði 2-2 Arsenal var yfir
2-1 fram að síðustu sekundu leiksins þá átti leikmaður Tottenham skot sem hafnaði í markinu.En svo um sex leitið fór ég á fótboltaæfingu mikið voðalega er ég bara komin
í ágætis form er hættur í sullinu og er bara að halda mér í formi fyrir átökin í sumar.Sunnudagur var örygglega eftirminnilegasti dagur þassa helgi ég vaknaði um hádeig fór með Ara
útí sjoppu og fengum okkur hambó þar hittum við Gísla og honum sagðist langa að fara aðeins í fótbolta útá sparkveklli það gerðum við ákváðum þá bara að taka litla Vetrarbrunaæfingu
ég Ari og Gísli það sem er fyndið að sjá Gísla í fótbolta er ekki eðlilegt fyndnasta sem ég hef séð lengi.En eftir fótbolta ákváðum við að fara í göngutúr nennetum ekki að eiða þessum
fallega degi í að hanga heima að horfa á sjónvarpið eða vera í tölvuni.Við ákváðum að labba úti skógrægt veit ekki alveg hvað það eru margir kílometrar nokkrir allavega en þegar við vorum
að fara úr skógræktinni ákáðum við að fara í pottin þar sem heita vatnið fannst er í tveimur litlum körum ég og Ari skruppum úti og mikið djöful var þetta gott Gísli þorði ekki oní strax en
svo píndum við hann svo mikið að hann skellti sér ofaní ég vildi að maður hefði tíma til að fara þangað á hverjum degi þetta var svo gott
en Gummi áttu nokkuð derhúfu.Já svona var nú þetta ágætis helgi bara vona að næsta verði betri sjáumst hress og kát í næsta bloggi sem verður einhverntiman þegar ég nenni
blessuð.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 15:26:50 / natan

Kellmundínus strútsen

1. Hvað heitir þú?

2. Hvað ertu gamall/gömul ?

3. Ertu á lausu eða föstu?

4. Hvaða tónlist hlustaru mest á?

5. Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?

6. Hvaða 5 hlutir minna þig á mig?

7. Ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru svara?

8. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

9. Hver er ?Idolið? þitt?

10. Hvern þykir þig vænst um?

11. Ertu ástfangin/n ?

12. Hefuru verið ástfangin/n ?

13. Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?

14. Ætlaru að plögga þessu á síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá þér?


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Könnun
Áttu sokkabuxur